Mungát Þorrabjór 2009
Mungátin var sama uppskrift og Skjálfti nema krydduð með mjaðjurt og ætihvönn. Þar að auki var Mungát gerðuð með öðrum hætti en Skjálfti.
Malt: 4 tegundir byggmalt 1 tegund hveitimalt
Humlar: First Gold, Cascade og Celeia.
Ger: Lagerger
Krydd: Mjaðjurt og ætihvannarfræ
Styrkleiki: 5% Alc
Bragð:Mungát var talsvert frábrugðin skjálfta í bragði og minnti helst á góðan hveitibjór.
Matur: Þorramatur
Sagan: Á víkingaöld drukku menn þrennskonar áfenga drykki. Fínasti drykkur þess tíma var mjöður en sá drykkur er hunangsvín sem eingöngu var gerður úr hunangi og vatni. Annar drykkur sem líklega var kallaður bjór var eplasíder frá Bretlandseyjum. Svo var það mungátin en það er sá drykkur sem við köllum bjór í dag.
Þessi bjór verður ekki bruggaður aftur. Ölvisholt mun koma með nýja uppskrift á hverju ári að þorrabjór.