Suttungasumbl Þorrabjór 2010 Suttungasumbl er ekki bruggaður sem einhver ákveðinn bjórstíll en hann er undir miklum áhrifum frá bjórmenningunni í Belgíu. Notaður er belgískur ger sem gefur áberandi ávaxta og kryddkeim. Síðan er bætt út í bjórinn eftir gerjun, bláberjum og krækiberjum til að koma af stað seinni gerjun. Berin bæta við ákveðið berja/ávaxtabragð og gera biturleikann aðeins þurrari.
Suttungasumbl á sér enga hliðstæðu í heiminum í dag frekar en íslenski þorramaturinn. Malt: 2 tegundir byggmalt 1 tegund hveitimalt
Humlar: First Gold og Celeia.
Ger: Belgískt ölger
Krydd: Aðalbláber og krækiber
Styrkleiki: 7,2% Alc
Bragð:
Matur: Þorramatur
Sagan: Suttungs synir munu hafa setið í helju og þambað sumbl en það var þeirra heiti á bjór. Faðir þeirra Suttungur mun svo hafa verið sérlegur gæslumaður skáldamjaðarins. Sauðkindin á miðanum tengist helju ekki neitt, hún var stödd þarna fyrir tilviljun.