Skjálfti
Skjálfti hefur nokkra sérstöðu meðal íslenskra bjóra. Skjálfti er af tegundinni premium lager. Skjálfti inniheldur talsvert meira úrval af malti og humlum en venja er í bjórgerð hér á landi enda með flókna bragðsamsetningu.
Malt: 5 tegundir byggmalt 1 tegund hveitimalt
Humlar: First Gold, Cascade og Celeia.
Ger: Lagerger
Styrkleiki: 5% Alc.
Bragð:Skjálfti er maltmikill bjór með mikinn aromakeim sem kemur af humlum. Sítrus og karmella í eftirbragði.
Matur: Skjálfti hentar vel með feitum og bragðmiklum fiski, pastaréttum og léttum kjötréttum. Skjálfti stendur einnig fyllilega undir sínu einn og sér
Sagan: Þann 21. júní árið 2000 kom mikill jarðskjálfti á Suðurlandi. Upptök skjálftans voru við austurjaðar jarðarinnar Ölvisholts. Skjálftinn var harður í Ölvisholti, ein bygging hrundi, aðrar skemmdust og tjón á innanstokksmunum var mikið. Heitið Skjálfti hæfir vel staðsetningunni enda fólk á svæðinu alið upp við þá vitneskju að einn góðan veðurdag kæmi suðurlandsskjálfti. Tveimur dögum fyrir formlegt opnunarhóf brugghússins kom síðan annar skjálfti með upptök milli Selfoss og Hveragerðis þann 29. maí 2008. Merkilegast verður þó að teljast að í sömu viku og Skjálfti fór í hillur verslana í Svíþjóð þá kom þar fyrsti jarðskjálfti í 60 ár.