Ölvisholt Brugghús
Með þér á góðri stund
Forsíða
Um okkur
Hafðu samband
Myndir
Bjórinn
Fréttir
Heimsóknir
Verslun
Jólabjór 2009
Jólabjór 2009


Reyktur bock jólabjór 2009

Bock bjór er þýskur hátíðabjór sem gjarna var drukkinn á föstunni. Bock bjórinn var oftast hafður aðeins sterkari en sá bjór sem drukkinn var hversdags. Mörgum reyndist erfitt að drekka mjög beiskan bjór á fastandi maga og því var bock bjór oftast hafður sætur og lítið beiskur. Reyktur bock bjór á hinsvegar rætur sínar að rekja til Bamberg í Þýskalandi.

Malt: 4 tegundir byggmalt, þar af 1 tegund kofareykt malt.

Humlar: First Gold, Fuggle, Goldings E.K.

Ger: Lagerger

Styrkleiki: 6,5% Alc

Bragð:
Reykjarbragð, negulbragð, létt sæta og lítil beiskja.

Matur: Íslenskt hangikjöt

Sagan: Ölvisholt reyktur bock var hannaður með það í  huga að passa með íslenska hankikjötinu og það var mál manna að það hefði akkúrat verið raunin. Myndin á flöskunni fékk marga til að klóra sér í hausnum. Þar situr íslenskur jólasveinn með hangikjötslæri, umvafinn reyk og er ríðandi á geithafri.

Enginn veit nákvæmlega hvernig bjór-Bock heitið er tilkomið og margar skemmtilegar þjóðsögur orðið til um uppruna þess. Bock er þýska orðið yfir geit og oft er mynd af geithafri á Bock bjór.