Ölvisholt Brugghús
Með þér á góðri stund
Forsíða
Um okkur
Hafðu samband
Bjórinn
Fréttir
Páskabjór 2011
Páskabjór 2011


Lilja, Páskabjór 2011

Lilja er toppgerjað maltríkt öl með góðri fyllingu. Lilja er ágætlega humluð og nánari skilgreining á bjórstílnum myndi vera amerískt fölöl eða American Pale Ale. Lilja er þurrhumluð sem þýðir að ilmhumlum er bætt útí gerjunartank þegar bjórinn hefur lokið gerjun sinni.

Malt: 5 tegundir byggmalt, 1 tegund hveitimalt.

Humlar: First Gold, Cascade, Amarillo.

Ger: Ölger

Styrkleiki: 5,7% Alc

Bragð:
Silkimjúkt öl með góðri humlafyllingu og vænum skammti af humlailm.

Matur: Páskasteikin

Sagan: Eysteinn Ásgrímsson munkur orti gríðar fallegt kvæði, Lilju,  á 14. öld. Varð þá til orðtakið, ,,allir vildu Lilju kveðið hafa"