Móri - rautt öl
Móri er stóri bróðir skjálfta en inniheldur heldur fjölbreyttara úrval af malti og heldur meira af humlum. Móri er flókinn og bragðmikill öl.
Malt: 6 tegundir byggmalt 1 tegund hveitimalt
Humlar: First Gold, Cascade, Goldings og Fuggle.
Ger: Ölger Styrkleiki: 5,5% Alc
Bragð:Léttristað malt, karmella, örlítil sæta og ávaxtakeimur í eftirbragði.
Matur: Móri er bestur með bragðmiklu kjöti en kannski fyrst og fremst steiktu eða grilluðu kjöti. Móri stendur fullkomlega undir sínu einn og sér.
Sagan: Móri heitir eftir Kampholts Móra sem er frægur draugur hér í sveitinni. Móri mun hafa sést einusinni í Ölvisholti fyrir mörgum árum. Ölið Móri er virðingarvottur við ungan dreng sem drukknaði fyrr á öldum eftir að hafa verið úthúst þegar hann beiddist gistingar á bæ nokkrum. Hann gekk aftur og sór þess eið að fylgja afkomendum bóndans á bænum í 9 kynslóðir.
Draugurinn Móri hefur ekki sést í brugghúsinu enn, þó hann sé þar velkominn eins og aðrir.