Lava- Reyktur Imperial Stout
Lava hefur algjöra sérstöðu í bjórframleiðslu hér á landi og reyndar á heimsvísu. Lava er kolsvart öl en liturinn kemur frá dökkristuðu malti sem hefur verið brennt á svipaðan hátt og kaffibaunir. Markmið bruggmeistarans var að gera bjór sem hefði mikla sérstöðu. Upphaflega var Lava framleiddur fyrir Svíþjóð en ákveðið var eftir að framleiðsla hófst að setja Lava í reynslusölu hjá ATVR sem gekk vonum framar. Lava er eins og gott vín, hann batnar á flöskunni í 3 ár sé hann geymdur á köldum stað.
Malt: 6 tegundir byggmalt 1 tegund hveitimalt (þar af kofareykt malt)
Humlar: First Gold, Fuggle.
Ger: Ölger
Styrkleiki: 9,4%
Bragð:Lakkrís, karmella, reykur, kaffi ofl.
Matur: Lava er mjög fínn desertbjór með súkkulaðiköku t.d. Mörgum finnst best að drekka hann einan og sér.
Sagan: Valgeir bruggmeistari bruggaði þennan bjór upphaflega í tilraunabrugghúsi Ölvisholts en í því er hægt að brugga 20 lítra af bjór. Bjórinn smakkaðist afar vel að mati eigenda og starfsmanna. Það endaði með því að ein flaska var eftir í hillunni sem enginn þorði að drekka. Stuttu síðar fer Bjarni Einarsson annar eigenda brugghússins á bjórsýningu í Svíþjóð að kynna bjórinn Skjálfta fyrir áhugasömum kaupendum. Þegar Bjarni var að tygja sig til brottfarar þá mundi Valgeir eftir flöskunni góðu og biður Bjarna að gefa einhverjum að smakka á sýningunni. Það varð svo úr að Bjarni hittir innkaupastjóra Systembolaget (vínbúð þeirra sænsku), man þá eftir flöskunni góðu og gefur honum að smakka. Undirtektir voru góðar og innkaupastjórinn spurði hvenær við gætum skaffað þennan bjór.
Heitið lava vísar til heklugosa sem sjást stundum frá Ölvisholti en límmiðinn sýnir nokkurn veginn hvernig það lítur út séð útum brugghús dyrnar.