Jólaöl 2008 - Dökkt öl
Jólaölið 2008 hafði algjöra sérstöðu. Það var upphaflega hannað fyrir Danmerkur markað en við ákváðum að setja örlítið mildari útgáfu á markað hér á Íslandi. Ekki stóð á viðbrögðum og annaðhvort héldu menn varla vatni yfir bjórnum eða fannst hann alls ekki vera að gera sig. Það eru einmitt merki um sérstaklega vel heppnaðan bjór.
Malt: 6 tegundir byggmalt 1 tegund hveitimalt
Humlar: First Gold, Fuggle.
Ger: Ölger
Krydd: Íslensk mjaðjurt, íslensk ætihvannafræ, kanill og negull.
Bragð:Mjög flókinn bjór, sumum reyndist erfitt að henda reiður á öllum þeim bragðtegundum sem helltust yfir bragðlaukana.
Matur: Jólasteikin.
Sagan: Valgeir bruggmeistari var við störf hjá Heather Ale í Skotlandi en það brugghús er frægt fyrir að krydda sína bjóra með allskyns láðs og lagargróðri. Jón E. Gunnlaugsson annar eigenda fyrirtækisins hefur árum saman rekið fyrirtæki sem seljur jurtate. Þarna upphófust miklar spekúlasjónir og niðurstaðan var mjaðjurt og ætihvönn til viðbótar við allt hitt. Jólabjór 2008 verður ekki framleiddur aftur þar sem við munum koma með nýja uppskrift á hverju ári.