Ölvisholt Brugghús
Með þér á góðri stund
Forsíða
Um okkur
Hafðu samband
Myndir
Bjórinn
Fréttir
Heimsóknir
Verslun
september, 2009
Fréttir

RSS
Skjálfti, Móri og Lava á krana í Svíþjóð
30/9/2009 10:53:46 PM
Í dag hófum við útflutning á bjór í kútum til Svíþjóðar. Þetta er afar merkilegur áfangi þar sem menn drekka alla jafna meiri bjór af krana en úr flösku. Í fyrstu verður boðið uppá kranabjór frá okkur á Bishop´s Arms pöbbakeðjunni sem teygir anga sína víða um Svíþjóð. Við þennan útflutning notumst við við nýja uppfinningu í bjórheimum en það eru einnota og endurvinnanlegir kútar í stað stálkútanna sem venjulega er notast við.
Vel heppnuð kynning í Stokkhólmi
30/9/2009 10:49:15 PM
Ölvisholt tók í annað sinn þátt í sýningunni Stockholm Beer & Whiskey festival sem haldin var um miðjan september. Við vorum hrærðir yfir þeim móttökum sem við fengum og fengum það staðfest að það er mikill og einlægur áhugi hjá svíum á vörum Ölvisholts. Okkur hlýnaði um hjartarætur þegar við áttuðum okkur á því að við fengum meiri athygli en vel þekkt og stór vörumerki í bransanum.

Þann 19-20. október er svo skemmtileg Darköl Festival í Gautaborg sem haldin er af pöbbakeðjunni Bishop´s Arms. Þar verður Lava bjórinn okkar í aðalhlutverki.
Allar vörur Ölvisholts fáanlegar í Danmörku
30/9/2009 10:41:58 PM
Þrátt fyrir afar erfitt umhverfi í sælkera-bjórheimum Danmerkur þá höldum við ótrauð áfram á þeim markaði. Nýr dreifingaraðili Aroz hefur tekið til starfa og mun dreifa öllum framleiðsluvörum Ölvisholts þar í landi.  Sending með Móra, Lava, Freyju og Skjálfta verður komin til Danmerkur um miðjan október.

Mest verður sótt á bari og veitingastaði en einhverjir stórmarkaðir verða einnig með vörur okkar, þar á meðal Magazin Du Nord.
3 liðir í heild