Ölvisholt Brugghús
Með þér á góðri stund
Forsíða
Um okkur
Hafðu samband
Myndir
Bjórinn
Fréttir
Heimsóknir
Verslun
Jólabjór 2009

Framleitt magn af ÖB jólabjór fyrir þessi jól var talsvert meira en
áðurgengin jól.  Var sú ákvörðun tekin að bæta við framleiðsluna sökum góðra
undirtekta sem og í þróunarferli þótti jólabjórinn okkar njóta mikilla
vinsælda meðal sælkera sem voru fengnir til að bragða á sýnishornum.

Þegar varan fór á markað var ljóst að hann myndi seljast upp nokkurn veginn
um leið og hún var sett í búðir og því voru margir sem gripu í tómt.  Um 90%
af framleiddum Jólabjór fór í verslanir ÁTVR en restin á veitingahús og
bari. Þótti okkur mjög leitt að heyra að einhverjum viðskiptavinum ÁTVR
hölluðust að því að um væri að ræða sofandahátt í innkaupadeild þeirra sem
ylli því að um skort var að ræða í Vínbúðunum. Það leiðréttist því hér með.
Samstarfsaðili okkar, Karl K.Karlsson ehf, hefur vandað sig mjög við
dreifingu okkar vöru og hafa menn þar á bæ gætt réttlætis í skiptingu
vörunnar milli viðskiptavina.

Með mikið þakklæti í huga vegna móttakanna sem bjórarnir okkar hafa fengið,
heitum við því að við munum framleiða meira magn af jólabjór um næstu jól en
biðjum viðskiptavini okkar um að hafa í huga að Ölvisholt Brugghús er
örbrugghús.  Það felur í sér að við munum aldrei fórna þeirri sannfæringu
okkar að framleiða bjór í magni á kostnað gæða.
<< Til baka Bæta við athugasemd
Birgir
12/12/2009 2:19:43 PM
Jólabjórinn 2009
Enn einu sinni tekst Ölvisholti að toppa fyrri framleiðslu. Jólabjórinn 2009 er þvílík snilld að það eina sem mér dettur í hug í sama anda er maltviskí frá Isle of Islay! Ég er farinn að hlakka til Þorrans............og svo páskanna............og næstu jóla......
1 liðir í heild
Bæta við athugasemd
nafn*
Umfangsefni*
Athugasemd*
Vinsamlegast sláðu inn staðfestingarkóðan sem þú sérð á myndinni*
Endurhlaða myndina