|
Í dag hófum við útflutning á bjór í kútum til Svíþjóðar. Þetta er afar merkilegur áfangi þar sem menn drekka alla jafna meiri bjór af krana en úr flösku. Í fyrstu verður boðið uppá kranabjór frá okkur á Bishop´s Arms pöbbakeðjunni sem teygir anga sína víða um Svíþjóð. Við þennan útflutning notumst við við nýja uppfinningu í bjórheimum en það eru einnota og endurvinnanlegir kútar í stað stálkútanna sem venjulega er notast við. |
|
|
<< Til baka |
Bæta við athugasemd |