Ölvisholt Brugghús
Með þér á góðri stund
Forsíða
Um okkur
Hafðu samband
Myndir
Bjórinn
Fréttir
Heimsóknir
Verslun
Fréttir

RSS
Sala á Lava gengur vel í Manitoba
30/3/2010 3:41:01 PM
Bjórinn Lava, Reyktur Imperial Stout, flaggskip Ölvisholts er búinn að vera í sölu í Manitoba í 1 viku og fjórðungur af fyrstu sendingunni seldur nú þegar. Bjórinn Skjálfti er svo á leið í hillur í Toronto en það verður athyglisvert að sjá hvernig viðtökur verða þar enda er kaupandinn LCBO stærsti staki kaupandi áfengis í veröldinni.

Það er fyrirtækið Fitumi Trading co. sem sér um sölu og dreifingarmál Ölvisholts í Norður-Ameríku.
Jólabjór 2009
9/12/2009 10:30:38 AM
Framleitt magn af ÖB jólabjór fyrir þessi jól var talsvert meira en
áðurgengin jól.  Var sú ákvörðun tekin að bæta við framleiðsluna sökum góðra
undirtekta sem og í þróunarferli þótti jólabjórinn okkar njóta mikilla
vinsælda meðal sælkera sem voru fengnir til að bragða á sýnishornum.

Þegar varan fór á markað var ljóst að hann myndi seljast upp nokkurn veginn
um leið og hún var sett í búðir og því voru margir sem gripu í tómt.  Um 90%
af framleiddum Jólabjór fór í verslanir ÁTVR en restin á veitingahús og
bari. Þótti okkur mjög leitt að heyra að einhverjum viðskiptavinum ÁTVR
hölluðust að því að um væri að ræða sofandahátt í innkaupadeild þeirra sem
ylli því að um skort var að ræða í Vínbúðunum. Það leiðréttist því hér með.
Samstarfsaðili okkar, Karl K.Karlsson ehf, hefur vandað sig mjög við
dreifingu okkar vöru og hafa menn þar á bæ gætt réttlætis í skiptingu
vörunnar milli viðskiptavina.

Með mikið þakklæti í huga vegna móttakanna sem bjórarnir okkar hafa fengið,
heitum við því að við munum framleiða meira magn af jólabjór um næstu jól en
biðjum viðskiptavini okkar um að hafa í huga að Ölvisholt Brugghús er
örbrugghús.  Það felur í sér að við munum aldrei fórna þeirri sannfæringu
okkar að framleiða bjór í magni á kostnað gæða.
Skjálfti, Móri og Lava á krana í Svíþjóð
30/9/2009 10:53:46 PM
Í dag hófum við útflutning á bjór í kútum til Svíþjóðar. Þetta er afar merkilegur áfangi þar sem menn drekka alla jafna meiri bjór af krana en úr flösku. Í fyrstu verður boðið uppá kranabjór frá okkur á Bishop´s Arms pöbbakeðjunni sem teygir anga sína víða um Svíþjóð. Við þennan útflutning notumst við við nýja uppfinningu í bjórheimum en það eru einnota og endurvinnanlegir kútar í stað stálkútanna sem venjulega er notast við.
Vel heppnuð kynning í Stokkhólmi
30/9/2009 10:49:15 PM
Ölvisholt tók í annað sinn þátt í sýningunni Stockholm Beer & Whiskey festival sem haldin var um miðjan september. Við vorum hrærðir yfir þeim móttökum sem við fengum og fengum það staðfest að það er mikill og einlægur áhugi hjá svíum á vörum Ölvisholts. Okkur hlýnaði um hjartarætur þegar við áttuðum okkur á því að við fengum meiri athygli en vel þekkt og stór vörumerki í bransanum.

Þann 19-20. október er svo skemmtileg Darköl Festival í Gautaborg sem haldin er af pöbbakeðjunni Bishop´s Arms. Þar verður Lava bjórinn okkar í aðalhlutverki.
Allar vörur Ölvisholts fáanlegar í Danmörku
30/9/2009 10:41:58 PM
Þrátt fyrir afar erfitt umhverfi í sælkera-bjórheimum Danmerkur þá höldum við ótrauð áfram á þeim markaði. Nýr dreifingaraðili Aroz hefur tekið til starfa og mun dreifa öllum framleiðsluvörum Ölvisholts þar í landi.  Sending með Móra, Lava, Freyju og Skjálfta verður komin til Danmerkur um miðjan október.

Mest verður sótt á bari og veitingastaði en einhverjir stórmarkaðir verða einnig með vörur okkar, þar á meðal Magazin Du Nord.
Dreifing í Danmörku
13/8/2009 4:34:57 PM
Nú getum við glatt þá fjölmörgu íslendinga sem búsettir eru í Danmörku að farið verður að dreifa öllum bjórum Ölvisholts á veitingastaði víða um Danmörku núna í haust 2009.
Einhverjir stórmarkaðir verða einnig með okkar bjóra í sínum hillum. Ekki er komin nákvæm tímasetning en við ritum um það frétt þegar við vitum meira.

Lava á leið til Kanada
13/8/2009 4:32:07 PM

Flaggskip íslenskrar bjórmenningar (eins og Gestgjafinn kallar hann) Lava bjórinn frá ÖB var samþykktur inní Manitoba's Liquor Marts (MLCC) sem mun bætast í hóp viðskiptavina Ölvisholts í október 2009. MLCC er ÁTVR frænda okkar í Manitoba í Kanada. Hinir skeleggu vesturfarar geta því loks fengið íslenskan bjór eftir allan þennan tíma í vesturheimi.

Mengun neysluvatns í Flóahreppi28/7/2009 11:27:30 AM
31/7/2009 3:20:23 PM
Í fréttum RUV í lok júlí kom fram að neysluvatn í Flóahreppi væri mengað. Það skal tekið fram að sú vatnslind sem um ræðir er ekki tengd við Ölvisholt og vatnsbúskapur bæjarins er í góðu lagi.
8 liðir í heild