Ölvisholt Brugghús
Með þér á góðri stund
Forsíða
Um okkur
Hafðu samband
Myndir
Bjórinn
Fréttir
Heimsóknir
Verslun
Freyja
Freyja


Fósturlandsins Freyja - hveitibjór

Fósturlandsins freyja er hveitibjór eða Witbier að belgískri fyrirmynd. Freyja er létt, silkimjúk og bragðminnst af bjórum Ölvisholts.

Malt: 2 tegundir byggmalt 1 tegund hveitimalt

Humlar: First Gold, Hallertau Hersbrucker.

Ger: Ölger

Krydd: Appelsínubörkur, kóríander

Styrkleiki: 4,5% Alc

Bragð:
Freyja er með milt og þægilegt bragð. Appelsína og kóríander í eftrirbragði ásamt lítilli beiskju.

Matur: Freyja hentar vel með léttum fiskréttum og pastaréttum. Freyja er einnig góð ein og sér.

Sagan: Þessi bjór er virðingarvottur okkar við hina íslensku konu sem hefur fætt okkur og klætt í gegnum aldirnar. Aðrir bjórar sem Ölvisholt hefur sett á markað hafa verið bragðmiklir og afar flóknir að gerð. Við ákváðum því að koma með fínlegan og silkimjúkan bjór sem útheimtir engin átök við bragðlaukana.